Upphaf

Markmiðið er að setja sig í spor þeirra sem hanna á fyrir. Þetta er gert til að skilja þarfir, reynslu og sjónarmið hugsanlegra notendenda. 

Fyrir hvern ertu að hanna? Reyndu að setja þig í spor þess sem á að fá eða nota það sem þú ætlar að hanna. Til að skilja betur getur þú gert rannsókn þar sem þú tekur viðtöl, skoðar aðstæður eða fylgist með.

Dæmi:

Ef þú ætlar að hanna hluti fyrir hunda, þá getur þú velt fyrir þér t.d. Hvað finnst hundum gaman að gera? Hvað borða hundar? Hvað með göngutúra? Þurfa hundar hjálp með eitthvað?

Ef þú átt eða þekkir hund getur þú fylgst með honum og séð hvað hann gerir yfir daginn og skráð það hjá þér. Þú getur líka tekið viðtöl við hundaeigendur og heyrt hvað þau segja.

Scroll to Top