Prenttími
Að framleiða hönnun nemenda er mikilvægt til þess að nemendur geti raungert hugmyndir sínar og komið þeim í fast form. Þrívíddaprentarar eru sniðugir að mörgu leiti en í skólastarfi þarf að huga að prenttímanum. Einn hlutur getur tekið margar klukkustundir eða jafnvel daga í prentun. Hagnýtt ráð, þegar prenta þarf marga hluti er að safna þeim saman og prenta sem flest í einu. Þarf sem efnið þarf að kólna áður en byggt er ofaná það er sniðugt að prenta margt í einu. Það getur munað mjög miklu, tímalega séð að prenta marga litla hluti saman. Hér á t.d við um nafnspjöldin. Þá er allir hlutir sem prenta á í sama hlut raðað þétt á plötuna og prentað (sjá mynd x.x). Hér þarf að hafa í huga að ef prentun þarf að ganga greiðlega fyrig sig má takmarka þá liti sem eru í boði fyrir nemendur.

Fljúgandi hlutir
Fyrir prentun getur kennari framkvæmt villuprófun til að koma í veg fyrir misheppnuð prent. Algeng villa hjá nemendum er að hafa „fljúgandi“ hluti í hönnuninni sem gerir það að verkum að prentið misheppnast. Það er hægt að ganga úr skugga að slíkt gerist ekki með því að fara yfir forskoðunina (e. Preview) í sneiðingarforritinu, Cura. Hér til hliðar er dæmi um tvö nafnspjöld, það efra (Öbí) er með fljúgandi stöfum en það neðra (Brimir) er í góðu lagi.
