Hugmyndir

Markmiðið er að koma með margar mismunandi hugmyndir sem leysa sama vandann

Þrjár hugmyndir: Teiknaðu eða skrifaðu niður þrjár mismunandi hugmyndir sem gætu leyst vandann sem þú skilgreindir

Besta hugmyndin: Veldu eina af hugmyndum þínum. Skrifaðu af hverju þú valdir þessa en ekki hinar. Bættu við smáatriðum og útskýringum sem eru mikilvægar fyrir hönnunina

Bingó: Nú ættir þú að vera komin með góða lýsingu á hugmynd þinni og getur farið að gera tilraunir að búa hana til.

Dæmi: Náttblindi hundurinn

Þrjár hugmyndir:

Hugmynd 1: Hafa skynjara á ljósum í húsinu, svo að það kvikni ljós á kvöldin þegar hundurinn er að leita af bælinu sínu.

Hugmynd 2: Búa til hálsól með ljósi svo að hundurinn finni bælið sitt þegar það er dimmt.

Hugmynd 3: Setja ljós á bælið svo að hundurinn finni það alltaf.

Besta hugmyndin:

Hugmynd 2

Búa til hálsól með ljósi svo að hundurinn finni bælið sitt þegar það er dimmt.

Þessi hugmynd varð fyrir valinu því að ljósið á ólinni lýsir honum í myrkri á kvöldin og þá getur hann fundið bælið sitt. 

Ólin þarf að vera þægileg svo að hundurinn vilji vera með hana. 

Þarf að vera vatnsheld því hundurinn fer stundum út að ganga á kvöldin þegar það er dimmt

Það kveiknar bara ljós á kvöldin þegar það er orðið dimmt. 

Ljósin eru endurhlaðanleg svo að það þarf ekki að skipta um rafhlöðu.

Bingó:

Nú er ég ég búin að lýsa hugmyndinni minni vel og get farið að búa hana til

Scroll to Top