Hannaðu og búðu til hlekk sem hægt er að fjölfalda og setja saman svo úr verði keðja eða hringabrynja.
Fylgdu hönnunarferlinu til að koma hugmynd þinni í framkvæmd

Rannsókn
Skoðaðu mismunandi útfærslur af hlekkjum, keðjum og hringabrynjum og skráðu hjá þér

Þrjár hugmyndir
Teiknaðu eða lýstu þremur mismunandi hugmyndum sem leysa vandann sem þú skilgreindir.

Besta hugmyndin
Veldu eina af þeim hugmyndum sem þú komst með og skrifaðu afhverju þú valdir þessa en ekki hinar. Bættu við smáatriðum og útskýringum sem eru mikilvægar fyrir hönnunina.

Bingó!
Nú ættir þú að vera komin með góða útskýringu á hugmyndinni þinni og getur fært þig yfir á næsta skref sem er að gera frumgerð.

Frumgerð
Teiknaðu bestu hugmyndina þína með aðstoð tölvustuddrar hönnunarforrita. Notaðu myndskeiðin hér neðst á síðuni þér til stuðnings

Prófa og meta
Prentaðu út sýnishorn (t.d 4 hlekki) og prófaðu hvort að hönnunin virki sem skyldi.

Breyta og bæta
Gerðu viðeigandi breytingar til að bæta hönnunina.

Framleiðsla
Þegar allt virkar sem skyldi er komið að því að búa til loka afurðina!
Markmiðið er að framleiða hönnunina þína

Fullbúið eintak
Þegar allt virkar sem skildi er komið að því að búa til lokaafurðina!
Kennaraleiðbeiningar
Verkefnið: Hlekkur, keðja, hringabrynja er áskorun sem leggur áherslu á að hanna og búa til út frá virkni. Keðjan hreyfist en hlekkirnir eru fastir saman. Nemendum er leiðbeint áfram í hönnunarferlinum með leiðarvísir og útskýringum á hverju skrefi.
Áætlaður tími í verkefnið: Fjórar kennslustundir, þar sem hver kennslustundin er 40 mínútur.
Undirbúningur kennara:
- Vera með skissubók fyrir nemendur eða notast við blöð og blýant
- Koma með hlut sem er með keðju til að sýna nemendum. Getur verið t.d keðja af hálsmeni, úri, lyklakippu eða prenta sýnishorn af hringabrynju (e. Chain mail).
- Stofna aðgang fyrir nemendur í Tinkercad
- Hafa innskráningarkóðann sýnilegan
Uppbygging kennslustundar:
- Innlögn kennara
- Nemendur vinna sjálfstætt á meðan kennari leiðbeinir
- Yfirferð, jafningjamat
- Nemendur leggja lokahönd á verkin sín
- Sjálfsmat
Hæfniviðmið úr aðalnámskrá sem tengjast verkefninu:
- Sjá hæfniviðmið úr Aðalnámskrá í töflu hér að neðan
Námsmat:
- Leiðsagnarmat í kennslustund
- Nemendur fylla út sjálfsmatið í lok verkefnisins.
- Jafningjamat í yfirferð
- Loka frammistöðumat þar sem verið er að prófa hæfni nemenda við að beita þekkingu sinni og leikni. Kennari er þannig ekki að meta lokaafurð heldur ferlið í heild sinni.
Yfirferð:
- Þegar nemendur eru komnir að þættinum prófun er farið í jafningjamat með yfirferð. Þá varpar kennari verkum nemenda uppá og nemenda segir frá hönnunninni í stuttu máli. Samnemendur ræða hönnunina. Kennari leiðir umræðuna og endurtekur góðar athugasemdir frá nemendum. Einnig er hægt að ntoast við grunnþætti og meginreglur hönnunar þegar talað er um verkið. Í framhaldi metur hönnuður hvort að það þurfi að gera breytingar eða fara á næsta stig.
Sjálfsmat:
- Við lok verkefnisins fylla nemendur út sjálfsmat
